Sjaldan er ein báran stök?

 

Ég kenni svolítið í brjóst um SDG eftir að hafa séð viðtal við hann sem var tekið í Kosningamiðstöð Framsóknarflokksins á Akureyri í gærkvöld Mér fannst hann eitthvað svo umkomulaus og neikvæður.

Það er sjálfsagt rétt hjá honum að staða hans (og Framsóknarflokksins)  væri önnur  í dag ef "að haldið hefði verið öðruvísi á málum" í Framsóknarflokknum "; Ef ekki hefðu "orðið atburðir í flokknum að undanförnu"; Ef hann hefði ekki verið "plataður í viðtal" hjá RUV á "fölskum forsendum"; Ef einhver bankastarfsmaður einhvers staðar í útlöndunum hefði ekki búið til eitthvert félag sem hann virtist varla vita hvað héti og skráð hann sem meðeiganda fyrir eignarhlut sem hann seldi síðan á elleftu stundu fyrir einn dollara; Ef hann hefði ekki orðið að skreppa í smáfrí frá sínum ábyrgðarstörfum vegna persónulegra aðstæðna; Ef sá sem átti að halda stólunum hans volgum hefði  bara hneigt sig og gengið aftur á bak í burtu þegar hann birtist að fríinu loknu.  Svona mætti efin lengi upp telja.

Ef horft er á björtu hliðarnar er SDG hinsvegar þjóðkunnur maður á besta aldri sem virðist mjög vel tengdur og þokkalega vel efnaður. Hann ætti því að eiga óteljandi möguleika á að uppfylla sinn draum um verða þjóðinni  "að gagni" eins og hann hefur orðað það, hvort sem það yrði innan þings eða utan.


mbl.is Hefðum getað verið valkosturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband